Sigurður Breki Kárason (2009), leikmaður KR, verður ekki með íslenska U17 landsliðinu þegar það mætir því portúgalska á morgun. Liðin eru að spila í undankeppni EM en Sigurður Breki mun ekki spila meira í undankeppninni.
Hann fór af velli á fjórðu mínútu gegn Ítölum á laugardag eftir að hafa fengið höfuðhögg.
Hann fékk vægan heilahristing og spilar því ekki leikin á morgun.
Hann fór af velli á fjórðu mínútu gegn Ítölum á laugardag eftir að hafa fengið höfuðhögg.
Hann fékk vægan heilahristing og spilar því ekki leikin á morgun.
Ísland og Portúgal hafa bæði tapað báðum sínum leikjum til þessa í riðlinum og spila því um 3. sæti riðilsins á morgun. Ísland tapaði 2-5 gegn Rúmeníu þar sem Sigurður Breki skoraði annað af mörkum Íslands og tapaði svo 0-4 gegn Ítölum.
Athugasemdir



