Ída Marín Hermannsdóttir átti góða leiki fyrir íslenska landsliðið í síðasta landsleikjaglugga. Ída, sem spilar með FH í Bestu deildinni, hafði ekki spilað með landsliðinu síðan 2022 en byrjaði óvænt gegn Spáni og svo aftur gegn Englandi nokkrum dögum síðar.
Spurt var út í frammistöðu Ídu á fréttamannafundi kvennalandsliðsþjálfarans fyrir helgi. Þar sat Þorsteinn Halldórsson fyrir svörum en framundan eru heimaleikir gegn Úkraínu og Englandi í undankeppni HM.
Spurt var út í frammistöðu Ídu á fréttamannafundi kvennalandsliðsþjálfarans fyrir helgi. Þar sat Þorsteinn Halldórsson fyrir svörum en framundan eru heimaleikir gegn Úkraínu og Englandi í undankeppni HM.
„Ída Marín var góð, kom vel inn í þetta og stóð sig vel. Það var langur tími frá því að hún spilaði síðast (með landsliðinu) en hún kom af krafti inn í þetta og gerði þetta virkilega vel," sagði Steini spurður út í Ídu.
Hann var svo spurður hvað annað hann tæki út úr leikjunum gegn tveimur af allra bestu liðum heims. Steini nýtti tækifærið og hrósaði Hildi Antonsdóttur sérstaklega fyrir hennar frammistöðu.
„Það voru ýmsir hlutir sem voru fínir. Varnarlega vorum við kannski smá rög, þorðum ekki alveg að stíga upp. Á móti Englandi fannst mér að við hefðum getað gert betur með boltann, fannst vera opnanir í gegnum miðsvæðið en við vorum ekki að finna það. Mér fannst Hildur góð í þessu verkefni, skilaði sínu virkilega vel. Það er jákvætt að við séum með leikmenn sem eru að spila vel. Svo voru fleiri litlir hlutir sem maður var sáttur við," sagði þjálfarinn.
Hildur er þrítugur miðjumaður sem spilar með Madrid CFF á Spáni. Hún á að baki ríflega 30 landsleiki og hefur verið í nokkuð stóru hlutverki frá árinu 2023 þegar hún vann sig inn í hópinn.
Athugasemdir




