Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 16:03
Brynjar Ingi Erluson
Víkingur er meistari meistaranna 2026
Nikolaj Hansen setti tvö fyrir Víking
Nikolaj Hansen setti tvö fyrir Víking
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 4 - 0 Vestri
1-0 Nikolaj Andreas Hansen ('18 )
2-0 Nikolaj Andreas Hansen ('44 )
3-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('87 )
4-0 Óskar Borgþórsson ('92 )
Lestu um leikinn

Íslandsmeistarar Víkings unnu Vestra, 4-0, í leik meistarar meistaranna á Víkingsvelli í dag. Nikolaj Hansen skoraði tvennu fyrir Víkinga.

Þetta var þægilegt hjá Víkingum sem komust í 1-0 á 18. mínútu er Nikolaj Hansen stýrði fyrirgjöf Helga Guðjónssonar í netið.

Hansen bætti við öðru undir lok hálfleiksins sem hamraði boltanum í netið eftir mikinn darraðadans í teignum eftir hornspyrnu.

Sanngjörn 2-0 forysta í hálfleik þó Vestri hafa átti ágætis kafla í leiknum.

Í þeim síðari voru Víkingar alltaf líklegir til að bæta við fleiri mörkum en þeir geymdu mörkin fram að lokakafla leiksins. Valdimar Þór Ingimundarson átti skot sem fór í varnarmann og aftur til hans og klikkaði hann ekki í seinni tilraun sinni.

Óskar Borgþórsson rak síðasta naglann í kistu Vestra í uppbótartíma með laglegu marki og þar við sat. Öruggur 4-0 sigur og eru það Víkingar sem fá montréttinn að vera meistari meistaranna í ár.

Víkingur hefur síðan leik í Bestu deildinni í erkifjendaslag gegn Breiðabliki þann 10. apríl á meðan Vestri spilar sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni gegn Grindavík þann 24. apríl.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner