Ekvadorinn Piero Hincapie hefur dregið sig úr landsliðshópnum og er níundi Arsenal-maðurinn sem dregur sig úr hópnum fyrir seinni vináttulandsleikina.
Hincapie, sem hefur spilað stóra rullu hjá Arsenal á fyrsta tímabili sínu, spilaði í 1-1 jafntefli Ekvador gegn Marokkó en var í kjölfarið sendur heim og mun því ekki mæta Hollandi á þriðjudag.
Varnarmaðurinn var skoðaður eftir leikinn Marokkó og var hann sendur aftur til Lundúna til að huga að mögulegum meiðslum.
Þetta er níundi Arsenal-maðurinn sem er sendur til félagsins í miðjum landsleikjaglugga.
Declan Rice, Noni Madueke og Bukayo Saka yfirgáfu enska landsliðshópinn eftir 1-1 jafnteflið gegn Úrúgvæ. Madueke meiddist í leiknum en Thomas Tuchel, þjálfari landsliðsins, gaf grænt ljós á að hleypa öllum þremur leikmönnum aftur til Arsenal.
Þeir Leandro Trossard, Gabriel, William Saliba, Jurrien Timber og Eberechi Eze gerðu það sömuleiðis. Eze meiddist og verður frá næsta eina og hálfa mánuðinn, en hinir leikmennirnir voru ekki með vegna líkamlegs ástands. Martin Ödegaard er tíundi maðurinn en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli undanfarið.
Arsenal á mikilvæga leiki framundan. Liðið er með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar og í átta liða úrslit enska bikarsins.
???? Following medical tests, Piero Hincapié leaves Ecuador camp and returns to London with immediate effect.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 29, 2026
Arsenal defender will be assessed by #AFC staff this upcoming week. pic.twitter.com/hd1oGOdZPS
Athugasemdir



