Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   sun 29. mars 2026 11:10
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Mikael hæstánægður með goðsögnina - „Ég fíla hann“
Mikael Egill Ellertsson í leik með Genoa.
Mikael Egill Ellertsson í leik með Genoa.
Mynd: EPA
Daniele De Rossi.
Daniele De Rossi.
Mynd: EPA
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson hefur verið að spila virkilega vel með ítalska liðinu Genoa og er hæstánægður undir stjórn goðsagnarinnar Daniele De Rossi sem tók við liðinu í nóvember.

Mikael ræddi stuttlega um góða spilannsku sína á Ítalíu í samtali við Fótbolta.net í gær.

„Bara mjög vel. Þetta hefur gengið vel síðan De Rossi kom og ég er að spila allar mínútur, þetta er bara frábært. Nú þurfum við bara að halda okkur uppi," segir Mikael.

Þessi fjölhæfi leikmaður spilar nánast alla leiki Genoa frá upphafi til enda og hefur oftast verið meðal bestu manna liðsins. Hann segir að De Rossi henti sér afskaplega vel sem þjálfari.

„Mjög vel. Ég fíla hann og hann hefur komið með kraft. Ég er mjög sáttur með þetta."

De Rossi þarf ekki að kynna fyrir fótboltaáhugafólki, allavega ekki þeim sem hafa fylgst með ítalska boltanum. Hann er goðsögn í Roma þar sem hann lék nánast allan sinn feril og átti svo eftir að þjálfa liðið.

Nú bíður hans verkefni að innsigla áframhaldandi veru Genoa í efstu deild Ítalíu en liðið er sem stendur sex stigum fyrir ofan fallsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
10 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
13 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
14 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner