Tottenham er í leit að nýjum stjóra eftir að Igor Tudor var látinn taka pokann sinn í dag eftir aðeins rúman mánuð í starfi.
Roberto de Zerbi, fyrrum stjóri Brighton og Marseille, er sterklega orðaður við enska félagið.
Roberto de Zerbi, fyrrum stjóri Brighton og Marseille, er sterklega orðaður við enska félagið.
Talið er að hann sé ekki tilbúinn að taka við liðinu strax en Tottenham er að reyna allt til að sannfæra hann um að taka við liðinu.
Austurríkismaðurinn Adi Hutter, sem gerði flotta hluti með Red Bull Salzburg, Young Boys, Eintracht Frankfurt, Gladbach og Mónakó hefur einnig verið orðaður við starfið. Hann hefur gefið út yfirlýsingu.
„Á undanförnum dögum og vikum hef ég verið tengdur við ýmis félög. Ég sagði um leið og ég fór frá Mónakó að ég ætla mér að verða stjóri í fyrsta lagi á næsta tímabili. Það hefur ekki breyst," segir Hutter.
Athugasemdir


