Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 28. mars 2026 23:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir með athyglisverða samlíkingu - „Eins og eftir bílslys"
Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, líkti tapi liðsins gegn Tékklandi, í leik um sæti á HM, við að lenda í bílslysi.

Írland náði tveggja marka forystu en Tékkar jöfnuðu metin og unnu í vítaspyrnukeppni.

„Þetta er eins og eftir bílslys. Ef þú lendir í bílslysi er best að fara aftur út í bíl og keyra svo áhrifin hverfa. Þetta er svipað, það er gott að spila strax á eftir og reyna að bæta það sem við getum og halda áfram. Við þurfum að vinna úr því af því að við höfum ekki spilað marga stórleiki áður," sagði Heimir.

Írland fær Norður Makedóníu í heimsókn í æfingaleik á þriðjudaginn.
Slapp
banner