Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho alls ekki hrifinn af Portúgal í fjarveru Ronaldo
Mynd: EPA
Portúgal gerði markalaust jafntefli gegn Mexíkó í æfingaleik í nótt. Cristiano Ronaldo var fjarverandi vegna meiðsla.


Þessi 41 árs gamli leikmaður er gríðarlega mikilvægur fyrir landsliðið en hann var markahæsti leikmaður liðsins í undankeppni HM.

Jose Mourinho var alls ekki hrifinn af frammistöðu liðsins gegn Mexíkó, það var ekki mikil ógn í sóknarleiknum.

„Takið Cristiano Ronaldo út úr myndinni og Portúgal lítur út eins og hvaða venjulega lið sem er. Fólk vill að við hættum að velja hann í hópinn. Hann spilaði ekki í dag og þið sáuð hvernig það fór. Engin ógn, engin hræðsla í andstæðingunum. Bara lið sem er sett undir pressu af Mexíkó," sagði Mourinho.

„Andstæðingurinn hugsar tvisvar þegar Ronaldo er á vellinum. Þeir hugsa ekkert án hans."
Slapp
Athugasemdir
banner