Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mán 30. mars 2026 09:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
De Zerbi að öllum líkindum að taka við Tottenham
Mynd: EPA
Robert de Zerbi er aðalskotmark Tottenham sem er í stjóraleit eftir að Igor Tudor, bráðabirgðastjóri liðsins, var látinn fara í gær.

BBC greinir frá áhuga Tottenham á Ítalanum og Sky á Ítalíu segir að félagið sé í viðræðum við hann um fimm ára samning.

De Zerbi þekkir til í úrvalsdeildinni eftir að hafa gert flotta hluti með Brighton. Hann tók við Marseille en yfirgaf franska félagið í síðasta mánuði. De Zerbi er sagður helst vilja taka við félaginu í sumar en Tottenham reynir að sannfæra hann um að taka strax við. Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að De Zerbi sé opinn fyrir að taka strax við.

Tottenham er einungis stigi frá fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni.

Þegar De Zerbi var stjóri Brighton vann hann ekki í fyrstu fimm leikjum sínum. Hann tók þá við Birighton af Graham Potter um mit tímabil og tók tíma fyrir hann að ná í sigur.

De Zerbi stýrði nýliðum Benevento árið 2017 í Seríu A, tók við á miðju tímabili, fékk hrós fyrir heillandi fótbolta, en náði ekki að halda liðinu uppi. De Zerbi náði ekki að vinna sigur í fyrstu níu leikjum Benevento.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 16 8 9 44 39 +5 56
5 Liverpool 33 15 8 10 52 42 +10 53
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Everton 33 13 9 11 39 37 +2 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
11 Sunderland 33 12 11 10 34 37 -3 47
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 8 10 15 32 44 -12 34
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 9 20 33 63 -30 21
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner