Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Koeman gæti skoðað Summerville í næsta glugga
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Frábærar frammistöður Crysencio Summerville hjá West Ham hafa ekki farið framhjá Ronald Koeman landsliðsþjálfara Hollendinga.

Summerville er 24 ára kantmaður sem var lykilmaður upp unglingalandslið Hollands en hefur ekki fengið tækifæri með A-landsliðinu. Hann skoraði 11 mörk í 37 leikjum með yngri landsliðunum og hefur verið í miklu stuði með West Ham í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu.

Summerville var lykilmaður í liði Leeds sem rétt mistókst að klifra upp úr Championship deildinni fyrir tveimur árum og var keyptur til West Ham í kjölfarið fyrir rúmlega 25 milljónir punda.

„Við erum með mikið af hæfileikaríkum fótboltamönnum frá Hollandi sem eru að gera góða hluti um alla Evrópu. Summerville er til dæmis að gera frábæra hluti hjá West Ham," sagði Koeman í viðtali á dögunum.

„Hann er snöggur, óútreiknanlegur og með gott markanef. Mér lýst mjög vel á hann og það kemur sterklega til greina að velja hann í næsta landsliðshóp.

„Hann er mikilvægur leikmaður í ensku úrvalsdeildinni og er fjölhæfur þar sem hann getur spilað á báðum köntum. Við erum að fylgjast náið með honum."


Holland spilar æfingalandsleiki við Noreg og Ekvador í lok mars og ætlar Koeman að nota þá leiki til að gera tilraunir fyrir HM.

Cody Gakpo, Donyell Malen, Jeremie Frimpong og Xavi Simons hafa verið að spila á köntum hollenska landsliðsins að undanförnu og var Noa Lang einnig í síðasta landsliðshóp.

Eftir að hafa átt erfitt uppdráttar fyrstu 18 mánuðina hjá West Ham er Summerville búinn að skora sjö mörk og gefa eina stoðsendingu í síðustu tíu leikjum.

Summerville vonast til að komast í landsliðshóp Hollendinga fyrir HM, en hann getur einnig valið að spila fyrir Súrínam sem er í umspili um sæti á HM.

Þessi smáþjóð í nyrsta hluta Suður-Ameríku tók þátt í undankeppni Norður-Ameríkuþjóða og vann sér inn umspilssæti fyrir HM.

Súrínam mætir Bólivíu í fyrsta umspilsleiknum og mun sigurvegari viðureignarinnar spila úrslitaleik við Írak um sæti á lokamótinu.
Athugasemdir
banner
banner