Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Tíu leikir án sigurs hjá Espanyol
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Espanyol 1 - 1 Oviedo
0-1 Alberto Reina ('8 )
1-1 Kike Garcia ('36 )

Espanyol tók á móti botnliði Real Oviedo í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans.

Gestirnir frá Oviedo byrjuðu af krafti og náðu forystunni á áttundu mínútu þegar Alberto Reina skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Thiago Fernández.

Þetta reyndist eina færi Oviedo í fyrri hálfleik og tóku heimamenn hægt og rólega stjórn á leiknum. Þeir náðu inn jöfnunarmarki á 36. mínútu þegar lág fyrirgjöf barst til Kike García sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í hornið.

Yfirburðir Espanyol héldu áfram í síðari hálfleik og með ólíkindum að heimamenn hafi ekki skorað.

Oviedo fékk einnig sín færi og hefði getað stolið sigrinum, en það tókst ekki. Lokatölur 1-1.

Hörmulegt gengi Espanyol á nýju ári heldur áfram. Liðið var í baráttu um meistaradeildarsæti fyrir jól en hefur ekki unnið einn einasta leik á árinu. Þetta var tíundi leikur liðsins í röð án sigurs.

Oviedo er búið að vinna einn leik á árinu og er liðið átta stigum frá öruggu sæti í La Liga - með 18 stig eftir 27 umferðir.

Espanyol situr í sjöunda sæti eftir jafnteflið og er í baráttu um evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner