Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 10. apríl 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
De Zerbi: Ég er ekki betri en Frank eða Tudor
Roberto De Zerbi.
Roberto De Zerbi.
Mynd: EPA
Vicario verður ekki með um helgina.
Vicario verður ekki með um helgina.
Mynd: EPA
Tottenham er í spennandi fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni en liðið heimsækir Sunderland á sunnudag. Nýr stjóri Spurs, Roberto De Zerbi, stýrir liðinu í fyrsta sinn.

De Zerbi var á fréttamannafundi í dag og greindi meðal annars frá því að markvörðurinn Guglielmo Vicario væri ekki klár í leikinn en hann vonast til þess að fá hann aftur á æfingar í byrjun komandi viku.

De Zerbi segist ekki vera betri stjóri en þeir sem voru í starfinu á undan honum en hann sé með öðruvísi hugmyndafræði og áherslur.

„Ég er stoltur og ánægður með að vera hérna, mér er sýnt mikið traust. Nú þurfum við að leggja á okkur vinnu. Ég hef fulla trú á gæðum leikmanna minna því ég hef í fortíðinni reynt að fá marga af þeim í mín fyrrum félög," segir De Zerbi.

„Ég er ekki betri stjóri en Thomas Frank eða Igor Tudor, ég reyni að koma inn með minn stíl og karakter, minn persónuleika og mína styrkleika. Að ná okkar markmiði er mikilvægast."

De Zerbi gerði fimm ára samning og segir að hann verði áfram þrátt fyrir að liðið falli.

„Ég vil vera lengi hérna, ég veit ekki hversu mörg ár. Það er áætlun mín að vera hérna lengi og koma Tottenham á betri stað í ensku úrvalsdeildinni."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner