Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur farið frábærlega af stað með liði sínu Angel City, í bandarísku NWSL-deildinni og segir fyrstu mánuðina hafa verið afar skemmtilega.
„Bara búið að vera geggjað sko. Það er mjög mikil umfjöllun um bandaríska boltann núna úti og alltaf gert stórmál úr öllu,“ sagði Sveindís þegar Fótbolti.net ræddi við hana.
Hún hefur spilað virkilega vel undanfarið og vakið athygli fyrir frammistöðu sína. Hún var meðal annars valin leikmaður mánaðarins hjá Sports Illustrated og varð þar með fyrsti leikmaðurinn til að hljóta þá viðurkenningu frá miðlinum.
Íslenski framherjinn átti stóran þátt í því að Angel City fór taplaust í gegnum mánuðinn, en hún skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö í mars
„Ég er nú bara framherji í liðinu og hef hvað, skorað þrjú mörk, þannig að ég held að það sé nú ekkert eitthvað rosalegt en það er allavega talað mjög mikið um það.“
Sveindís segir viðurkenninguna hafa komið henni nokkuð á óvart.
„Ég vissi nú svo sem ekki hvað þetta Sports Illustrated var áður en mér var sagt að ég væri leikmaður mánaðarins, en það er auðvitað bara skemmtilegt og mikill heiður.“
Hún segir byrjunina hafa gefið sér mikið sjálfstraust.
„Ég er auðvitað bara mjög glöð og þetta gefur manni auðvitað sjálfstraust. Ég er mjög glöð og ánægð með mína byrjun og ég verð bara að halda áfram.“
Hún ætti því að mæta sjóðheit og á skotskónum gegn Úkraínu nk. þriðjudag.

