Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   fim 09. apríl 2026 17:30
Snæbjört Pálsdóttir
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Eimskip
Sveindís Jane Jónsdóttir segir íslenska liðið ætla sér að sækja mörk gegn Úkraínu á heimavelli.
Sveindís Jane Jónsdóttir segir íslenska liðið ætla sér að sækja mörk gegn Úkraínu á heimavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís biðlar til áhorfenda að fjölmenna á völlinn og sjá þær vinna Úkraínu
Sveindís biðlar til áhorfenda að fjölmenna á völlinn og sjá þær vinna Úkraínu
Mynd: KSÍ

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir segir íslenska landsliðið spennt fyrir komandi heimaleik gegn Úkraínu og telur leikinn geta hentað liðinu vel.

„Bara spennandi, alltaf gaman að koma til Íslands og spila fyrir framan sitt fólk. Mjög spenntar fyrir leikjunum og erum auðvitað byrjaðar að æfa okkur fyrir Úkraínu leikinn, þar sem hann er fyrstur,“ sagði Sveindís þegar Fótbolti.net ræddi við hana.


Að hennar sögn eru verkefnin tvö fram undan ólík, en leikurinn gegn Úkraínu sé sérstaklega spennandi fyrir íslenska liðið.

„Þetta eru tveir frábærir leikir fyrir okkur og tveir ólíkir leikir. Úkraína er svona aðeins sá leikur sem við erum spenntastar fyrir. Þar sem vonandi getum við haldið aðeins betur í boltann og spilað þann bolta sem að við viljum gera.“

„Úkraína er alveg frábært lið þannig að ég held að þetta verði bara hörkuleikur og hörku jafn leikur líka.“

Hún bendir á að úkraínska liðið hafi sýnt styrk sinn gegn sterkustu þjóðum riðilsins.v

„Þær gerðu fínt á móti Englandi og Spáni. Þær skora á móti báðum liðum, þannig að við þurfum að vera vakandi fyrir þeirra skyndisóknum og bara þeirra leik.“

„Þær eru mjög beinskeyttar og að skora á móti Englandi og Spáni er ekkert auðvelt, ég meina við gerðum það ekki. Þær fá ekki mörg færi á móti þeim en skora samt, þannig þetta er bara hörkugott lið.“

„Við þurfum að vera vakandi fyrir því sem þær ætla að gera en spila okkar leik og skora einhver mörk.“

Og markmiðið er skýrt:

„Við viljum auðvitað skora mörk og það ætlum við að gera á móti Úkraínu.“

Sveindís segir að liðið geti einnig tekið jákvæða hluti með sér úr síðasta landsliðsglugga, þar sem Ísland mætti Spáni og Englandi.

„Þetta voru tveir mjög erfiðir leikir á móti bara tveimur bestu liðum heims.“

„Getum tekið það með okkur að við vitum að við getum varist bestu leikmönnum heims. Svo líka bara baráttan í okkur og hvað við gefumst aldrei upp, bara frábært og við getum tekið það með okkur.“

Að lokum segir hún stuðninginn úr stúkunni skipta miklu máli og skilaboðin til stuðningsmanna eru einföld:

„Það bara breytir öllu, að fá okkar fólk og fá Íslendinga í stúkuna er alltaf bara frábært.“

„Bara mæta, komið og horfið á okkur vinna Úkraínu og komið svo líka á næsta leik eftir það.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan. 


Slapp
banner
banner