Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gætu neyðst til að selja tvo mikilvæga leikmenn í sumar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
BBC greinir frá því að Newcastle United gæti þurft að selja tvo mikilvæga leikmenn í sumar til að standast fjármálareglur ensku úrvalsdeildarinnar.

Newcastle hefur keypt leikmenn umfram skapaðar tekjur á síðustu árum og þarf að rétta við bókhaldið með sölum á leikmönnum.

Ef félagið kemst ekki í evrópukeppni fyrir næsta haust eru miklar líkur á að tveir menn verði seldir til að koma til móts við peningatapið sem fylgir því að keppa ekki í Evrópu.

Newcastle er í tólfta sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, sjö stigum frá Liverpool í síðasta meistaradeildarsætinu.

Búist er við umtalsverðum breytingum á leikmannahópi Newcastle í sumar þar sem hin ýmsu stórveldi hafa áhuga á lykilmönnum liðsins þeim Sandro Tonali, Anthony Gordon og Tino Livramento.

Félagið hefur ákveðið að setja kaup á nýjum framherja í forgang næsta sumar þrátt fyrir að hafa eytt 125 milljónum punda til að kaupa Nick Woltemade og Yoane Wissa síðasta sumar.

Newcastle vantar einnig nýjan aðalmarkvörð þar sem Nick Pope þykir ekki nægilega góður. Aaron Ramsdale, sem er hjá Newcastle á láni frá Southampton, er aðalmarkvörður liðsins þessa dagana en félagið telur 25 milljón punda kaupákvæðið vera alltof hátt til að festa kaup á honum.

   02.04.2026 21:30
Woltemade svarar gagnrýni: Viðkomandi horfir ekki á marga leiki

Slapp
banner