Jónas Guðni Sævarsson mun taka við hlutverki yfirmanns fótboltamála hjá Keflavík.
„Jónas þarf vart að kynna fyrir sönnum Keflvíkingum enda átti hann farsælan feril sem leikmaður hjá félaginu sem ól hann frá blautu barnsbeini. Vertu velkominn Jónas, það þarf fólk eins og þig," segir í tilkynnigu frá Keflavík.
Seinna meir var hann framkvæmdastjóri en auk þess hefur hann gegnt ýmsum störfum fyrir félagið í gegnum tíðina.

Hann tekur við af Luka Jagacic en í gær tilkynnti Keflavík að hann væri hættur sem yfirmaður fótboltamála.
„Þau ár sem við höfum verið með meistaraflokkana okkar í efstu deild hefur reksturinn orðið mjög krefjandi sem hefur haft áhrif á umgjörðina og stemninguna í kringum félagið," segir Jónas Guðni.
„Þessu verðum við að breyta og myndi ég vilja að áherslan og helstu verkefni næstu árin væru að taka skrefin sem þarf til að gera Keflavík að sterku, sjálfbæru efstu deildar félagi."
Keflavík hefur leik í Bestu deild karla á sunnudaginn, þegar liðið heimsækir KR.