Varnarmaðurinn öflugi Guðrún Arnardóttir átti goðan leik í vörn íslenska landsliðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Belgíu í fyrsta leik Evrópumótsins í dag.
Lestu um leikinn: Belgía 1 - 1 Ísland
Íslenska liðið var súrt að taka bara stig út úr leiknum gegn Belgíu en færin voru svo sannarlega til staðar og vantaði bara upp á herslumuninn að klára þau færi.
„Þetta er frekar súrt. Mér fannst við betri aðilinn heilt yfir í leiknum og fannst við fá færi til að klára leikinn, þannig já þetta er súrt," sagði Guðrún við Fótbolta.net.
Stuðningurinn er mikill og fann Guðrún fyrir honum en hún segist fyllast stolti að sjá alla stuðningsmennina.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og algjör stemning í þessu og maður sér mikið af fólki í stúkunni í bláu og hvítu skyrtunum og það fyllir manni stolti, en að sama skapi þegar maður byrjar fótboltaleiki þá er þetta bara fótbolti og eitthvað sem maður hefur spilað oft og svoleiðis, en það er aukastolt yfir þessum leik."
Íslenska liðið átti erfitt með að ná góðu uppspili í byrjun leiks en hún segir að það hafi ekki endilega tengst stressi.
„Nei, ég persónulega fann ekki fyrir stressi. Ég var ekki að finna réttu leiðirnar. Þetta snýst um að koma sér inn í leikinn, það er góður andi í liðinu og það eru reyndir leikmenn þó við séum með unga leikmenn, en það eru leikmenn sem hafa spilað fyrir framan fjölda fólks. Það var ekki mikið stress, en auðvitað eitthvað."
„Við fórum svolítið vel yfir þær og þær voru eins og við bjuggumst við. Við áttum möguleika á að sigra þær en náðum ekki að klára það."
Eftir leik fór Guðrún inn í klefa og var augljóslega súr tilfinning þar en þær mæta hungraðar í leikinn gegn Ítalíu á fimmtudag.
„Ég fór aðeins inn í klefa og það er svolítið súr tilfinning því okkur finnst við eiga skilið að hafa tekið þrjú stig í dag þannig það er súrt að ná bara einu stigi eftir þessa frammistöðu."
„Við erum ekkert smá súrar í dag en þetta gerir okkur hungraðri í að vinna í næsta leik og það er það sem við tókum í hringnum eftir leik að mæta í Ítalíuleikinn og sýna okkar bestu hliðar."
„Það er alltaf gaman að vera byrjuð í þessu og fá þetta til að rúlla og núna erum við að detta í alvöru 'recovery' og kíkja á það hvað var gert vel í leiknum og hvað við getum gert betur. Það er gott að vera búin með leik en 'mixed feelings'," sagði Guðrún ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.























