Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 11:10
Elvar Geir Magnússon
Minning Björgvins Halldórssonar heiðruð í Víkinni
Bó Halldórs var varpað á skjáinn.
Bó Halldórs var varpað á skjáinn.
Mynd: Fótbolti.net - Útsendarinn í stúkunni
Víkingur heiðraði minningu stórsöngvarans Björgvins Halldórssonar í hálfleik í opnunarleik Bestu deildarinnar, stórleik Víkings og Breiðabliks.

Í hálfleik voru bara spiluð lög með Björgvin og mynd af honum varpað á vallarklukkuna.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

Björgvins var minnst í tengslum við fleiri íþróttaviðburði í gær en fyrir handboltaleik Hafnarfjarðarliðanna Hauka og FH var mínútuþögn en Björgvin fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951.

Hann hóf ungur tónlistarferil sinn og varð fljótt einn vinsælasti og afkastamesti söngvari landsins. Björgvin lést í vikunni, 74 ára að aldri.

Gullvagninn var meðal laga sem ómuðu í Fossvoginum í hálfleik í gær.


Slapp
banner