Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
   sun 11. september 2022 16:50
Sverrir Örn Einarsson
Júlli Magg: Það er ennþá langt upp á við
Júlíus Magnússon
Júlíus Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög fagmannleg frammistaða hjá okkur. Fyrri hálfleikur var með okkar betri frammistöðum á útivelli miðað við allar aðstæður allavega, ekki kannski fótboltalega séð en við lásum leikinn vel og gerðum það sem við þurftum að gera.“ Sagði fyrirliði Víkinga Júlíus Magnússon um leik sinna manna eftir 3-0 sigur Víkinga á Keflavík suður með sjó fyrr í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  3 Víkingur R.

Víkingar hafa verið duglegir að nýta þau færi sem liðið hefur fengið í undanförnum leikjum en liðið hefur skorað 12 mörk í síðustu tveimur leikjum og nýtt sín færi gríðarlega vel.

„Við erum með svakaleg gæði í þessum ungu strákum sem eru að spila framávið, léttleikandi og með hraða líka þetta er blanda sem þú vilt hafa i öllum liðum. Svo þetta eru bara gæðin í liðinu og þegar við vinnum boltann hátt á vellinum þá erum við banvænir. Það er ástæða þess að lið hápressa til að ná þessum stöðum.“

Sigurinn í dag auk þess að Breiðablik þurfti að gera sér að góðu tap á Akureyri verður til þess að forskot Blika á Víkinga minnkar niður í sex stig og staða Víkinga lítur ögn betur út í dag en hún hefur gert að undanförnu.

„Þegar úrslitin eru svona þá lítur þetta betur út en við verðum bara að hugsa um næsta leik. Það er ennþá langt upp á við en nóg af leikjum eftir þannig að við verðum bara að hugsa um okkur og halda áfram og taka bara einn leik í einu.“

Sagði Júlíus en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner
banner