Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 10:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sá næstmarkahæsti í úrvalsdeildinni gerir langan samning við Brentford
Mynd: EPA
Igor Thiago hefur skrifað undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Brentford og er möguleiki á eins árs framlengingu á þeim samningi.

Brasilíski framherjinn hefur sprungið út á þessu tímabili og hefur skorað 18 mörk ðí 27 leikjum í öllum keppnum, þar af eru 17 í úrvalsdeildinni. Einungis Erling Braut Haaland hefur skorað fleiri.

Thiago er nú samningsbundinn Brentford til sumarsins 2031.

„Ég elska félagið og fólkið í félaginu," segir Thiago sem kom frá Club Brugge til Brentford í febrúar 2024.

„Þetta er sönn ást, alvöru ást. Þegar stuðningsmenn styðja við mig, og ég sé þá syngja nafnið mitt og lagið mitt, það gefur mér meiri kraft. Þetta hefur verið mjög gott tímabil fyrir okkur. Allir hafa verið á sömu blaðsíðu. Ég vona að við getum gert eitthvað sérstakt úr því," sagði Thiago við undirskrift.

Hann glímdi við erfið meiðsli á fyrsta tímabilinu hjá Brentford og missti alls af 35 leikjum vegna meiðslanna.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 26 17 6 3 50 18 +32 57
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 26 1 6 19 16 48 -32 9
Athugasemdir
banner
banner
banner