Elliot Anderson hefur hlaupið mest allra í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabils. Deildin birti lista fyrir helgi yfir þá efstu tíu sem hafa hlaupið hvað mest það sem af er tímabils.
Sjö af tíu efstu leikmönnunum eru miðjumenn. Vinstri bakvörðurinn Adrien Truffert hjá Bournemouth er þá á lista, sem og sóknarmaðurinn Jarrod Bowen, leikmaður West Ham. Ethan Ampadu, fyrirliði Leeds, er einnig á lista en hann hefur spilað bæði á miðjunni og sem hafsent.
Fyrir hlaupagetu sína fær Elliot Anderson hina virtu Duracell viðurkenningu vikunnar frá Fótbolta.net. Listann má sjá hér fyrir neðan.

Tíu efstu:
Anderson (NFO): 342.39 km – 2,774 mín
Garner (EVE): 339.34 km – 2,784 mín
Rogers (AVL): 338.25 km – 2,757 mín
Berge (FUL): 331.96 km – 2,596 mín
Zubimendi (ARS): 329.90 km – 2,604 mín
Truffert (BOU): 328.03 km – 2,750 mín
Gibbs-White (NFO): 320.76 km – 2,646 mín
Ampadu (LEE): 318.63 km – 2,493 mín
Fernandez (CHE): 318.06 km – 2,583 mín
Bowen (WHU): 317.92 km – 2,778 mín