Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 10:19
Elvar Geir Magnússon
Ganverskur fótboltamaður myrtur
Lögreglan að störfum á fótboltaleik í Gana.
Lögreglan að störfum á fótboltaleik í Gana.
Mynd: EPA
Dominic Frimpong, tvítugur ganverskur framherji sem spilaði fyrir Berekum Chelsea í heimalandi sínu, lést eftir að skotárás var gerð á liðsrútu félagsins.

Fótboltasamband Gana segir þessi tíðindi mikð áfall og sendi fjölskyldu Frimpong, liðsfélögum og öllum hjá félaginu sínar „dýpstu samúðarkveðjur“.

Lið Berekum Chelsea var á heimleið eftir að hafa spilað deildarleik gegn Samartex í Samreboi þegar vopnaðir menn mynduðu vegartálma svo rútan komst ekki leiðar sinnar.

Mennirnir byrjuðu að skjóta á rútuna meðan bílstjórinn reyndi að snúa henni við. Leikmenn og starfslið flúðu í runna í kring til að leita skjóls.

Fótboltasambandið segir að öryggisgæsla fyrir lið sem eru að ferðast til og frá leikjum verði aukin.


Slapp
banner
banner