Valur laut í lægra haldi gegn Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í gær. Leikar enduðu 1-2 fyrir Þorpurum sem sóttu sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni í 4214 daga.
Hlíðarendafélagið hefur ekki átt óskabyrjun á nýhöfnu tímabili. Liðið er dottið úr leik í Mjólkurbikarnum og er án stiga eftir fyrstu umferð deildarinnar.
Í Innkastinu voru spurningamerki sett við stærð hópsins og furðað sig á því hvers vegna félagið sótti ekki Oliver Heiðarsson sem er á leið í KA.

Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 Þór
„Sjáiði bekkinn hjá Val. Orri Sigurður er að koma til baka eftir meiðsli, Adam Ægir kemur inn, Andi Hoti hefur smá reynslu úr efstu deild. Emil Nönnu kom óvænt inn á en var engu að síður fínn. Þetta eru annars óskrifuð blöð.“
„Maður er búinn að heyra í vetur að þeir séu að reyna fá leikmenn en það gengur ekkert. Af hverju er Valur er ekki að ná í Oliver Heiðarsson?“ Spyr Elvar Geir og þá segir Sæbjörn Steinke að KA hafi einfaldlega boðið betur.
„Hvenær ætla Valsarar að ýta á panikk takann? Og segja; Við bjóðum bara betur, við fáum Oliver Heiðarsson. Þeir þurfa á honum að halda. Þessi bekkur er ekki upp á marga fiska, með fullri virðingu. Byrjunarliðið er meira að segja ekki upp á marga fiska, bara fínt. Maður hefur miklar áhyggjur af Hlíðarendapiltum í dag,“ sagði Valur Gunnarsson að lokum.
Varamannabekkur Vals í gær:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
23. Adam Ægir Pálsson ('63)
24. Myles A Veldman ('63)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson ('69)
27. Pétur Eiríksson
33. Andi Hoti
66. Loki Kristjánsson