Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
„Liverpool bauð mér ekki nýjan samning"
Mynd: EPA
Skoski bakvörðurinn Andy Robertson yfirgefur Liverpool á frjálsri sölu í sumar eftir níu frábær ár hjá félaginu.

Robertson yfirgefur Liverpool sem goðsögn hjá félaginu og segir ástæðuna vera einfalda. Englandsmeistararnir buðu honum ekki nýjan samning.

Liverpool hafnaði tilboði frá Tottenham sem reyndi að kaupa Robertson í janúar en stórveldið ætlar að fá nýjan vinstri bakvörð inn í sumar til að yngja hópinn hjá sér. Robertson er 32 ára gamall.

„Ég hafnaði ekki nýjum samningi, félagið bauð mér einfaldlega ekki samning. Ég vil spila fótbolta og mér líður eins og ég hafi sannað það á tímabilinu að ég get ennþá staðið mig á þessu gæðastigi," segir Robertson sem er eftirsóttur af ýmsum félagsliðum.

„Ég var ekki langt frá því að skipta um félag síðasta sumar en svo ákvað ég að vera áfram. Það var svipuð staða í janúar. Ég ætla að reyna að semja við nýtt félag fyrir heimsmeistaramótið, ég vil ekki hafa neitt sem truflar mig í sumar.

„Eins og staðan er í dag þá er ekkert samkomulag í höfn."


Robertson er með 374 leiki að baki fyrir Liverpool.

   13.04.2026 14:48
Robertson nálægt samkomulagi við Tottenham

Slapp
banner
banner