Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 15:30
Snæbjört Pálsdóttir
Sandra María um endurkomu eftir barnsburð: Finnst rosalega mikilvægt að sýna það
Eimskip
Sandra María og fjölskylda hennar eru ánægð með lífið í Þýskalandi.
Sandra María og fjölskylda hennar eru ánægð með lífið í Þýskalandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María hefur snúið aftur í atvinnumennsku eftir barnsburð og vill vera fyrirmynd fyrir aðrar konur.
Sandra María hefur snúið aftur í atvinnumennsku eftir barnsburð og vill vera fyrirmynd fyrir aðrar konur.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sandra María Jessen hefur vakið mikla athygli fyrir að snúa aftur í atvinnumennsku á hæsta stigi eftir barnsburð og segir það skipta miklu máli að geta verið fyrirmynd fyrir aðrar konur í sömu stöðu.

„Já að sjálfsögðu. Mér finnst bara ótrúlega mikilvægt bara það sem er í gangi núna bara um allan heim. Það eru fleiri og fleiri konur að eignast börn og halda áfram í fótboltanum. Mér finnst það rosalega mikilvægt að sýna að það sé hægt og við erum komnar með margar fyrirmyndir í þeim pakka í dag.“


Hún segir að endurkoman hafi verið eitt það mest krefjandi sem hún hefur tekist á við á ferlinum.

„Ég er ótrúlega stolt af því sem ég hef gert, ég hef tvisvar sinnum slitið krossband en að koma til baka eftir að hafa eignast barn er náttúrulega eitthvað allt annað og bara meiri ábyrgð sem fylgir daglegu lífi.“

Sandra María segir lykilinn hafa verið skýran frá upphafi.

„Þetta er hægt bara með nógu miklum vilja og vera tilbúin til þess að leggja allt sem þarf að gera í það.“

Hún leggur áherslu á að umhverfið hafi skipt sköpum í ferlinu.

„Hafa góðan stuðning bæði frá klúbbnum og fjölskyldu og vinum. Þetta hafði ég einhvern vegin allt hjá mér og var bara staðráðin í frá því að ég vissi að ég væri ólétt að stefna aftur þangað sem ég er komin í dag.“

Í dag er hún komin aftur í atvinnumennsku með Köln í Þýskalandi þar sem henni líður vel bæði innan vallar og utan.

„Ég bara elska að vera í Þýskalandi. Ég náttúrlega er hálfur Þjóðverji og hef búið þarna áður. Unnusti minn er Þjóðverji þannig okkur líður rosalega vel þarna sem fjölskylda. Klúbburinn Köln er bara æðislegur, þetta er bara ein stór fjölskylda og frá degi eitt hefur manni liðið vel.“

Hún segir mikilvægt að ungar stelpur sem stefna á atvinnumennsku hafi gaman af þessu og nýti allar ráðleggingar sem þær fá.

„Bara fyrst og fremst að hafa gaman af þessu, ef þú hefur ekki gaman af þessu þá ertu ekki að fara að endast í þessu. Nýta allt sem þú færð, allar litlar upplýsingar sem þú færð frá þjálfurum, bara hlusta. Það er verið að segja að ástæðu hvað þú átt að gera. Bara hafa gaman og leggja sig fram.“


Slapp
banner