Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 14. febrúar 2021 18:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víti tekið af Saka - Fékk annað fimm mínútum seinna
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka átti frábæran leik fyrir Arsenal þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Saka nældi í tvær vítaspyrnur í fyrri háflleiknum en aðeins önnur þeirra fékk að standa.

Í fyrra tilvikinu virtist vera um að ræða pjúra vítaspyrnu en dómarinn var því ekki sammála. Hann dæmdi fyrst vítaspyrnu en skipti um skoðun eftir að hafa skoðað atvikið í VAR-skjánum.

Hérna má sjá myndband af atvikinu.

Saka féll aftur í teignum stuttu síðar eftir skelfileg mistök hjá markverðinum unga, Ilian Meslier. Sú vítaspyrna fékk að standa en myndband af því má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner