Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Óvænt tap Ipswich - Southampton á miklu flugi
Southampton er á miklu flugi
Southampton er á miklu flugi
Mynd: Southampton FC/X
Toppbaráttulið Ipswich Town tapaði óvænt fyrir fallbaráttuliði Portsmouth, 1-0, í ensku B-deildinni í kvöld. Svakalegt flug Southampton heldur áfram en það vann öruggan 3-0 sigur á Blackburn sem var sjötti deildarsigurinn í röð.

Öflugt vinnuframlag Portsmouth skilaði sigrinum gegn Ipswich sem er með töluvert sterkari hóp.

Conor Shaughnessy stangaði hornspyrnu Adrian Segecic í netið undir lok fyrri hálfleiks og tveimur mínútum síðar bætti Colby Bishop við öðru.

Ipswich var meira og minna með boltann stærstan hluta síðari hálfleiks en Portsmouth gerði vel, hélt út og náði í þrjú mikilvæg stig í fallbaráttunni.

Southampton ætlar sér aftur upp í úrvalsdeildina en liðið hefur verið á miklu flugi eftir áramót og aðeins tapað einum leik.

Það hélt sigurgöngu sinni áfram í kvöld með því að vinna 3-0 sigur á Blackburn Rovers.

Cyle Larin og Ryan Manning komu Southampton í 2-0 forystu í fyrri hálfleiknum og þá gerði Cameron Archer út um leikinn undir lok leiksins.

Southampton er í 4. sæti deildarinnar með 72 stig og komið í undanúrslit enska bikarsins. Blackburn Rovers er í 20. sæti með 48 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Andri Lucas Guðjohnsen er á mála hjá Blackburn en er að glíma við meiðsli og mun ekki snúa aftur fyrr en á næstu leiktíð.

Úrslit og markaskorarar:

Portsmouth 2 - 0 Ipswich Town
1-0 Conor Shaughnessy ('42 )
2-0 Colby Bishop ('44 )

Southampton 3 - 0 Blackburn
1-0 Cyle Larin ('24 )
2-0 Ryan Manning ('43 )
3-0 Cameron Archer ('86 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 42 25 10 7 84 42 +42 85
2 Ipswich Town 41 21 12 8 71 42 +29 75
3 Millwall 42 21 10 11 56 47 +9 73
4 Southampton 42 20 12 10 73 50 +23 72
5 Middlesbrough 42 20 12 10 62 42 +20 72
6 Hull City 42 20 8 14 64 60 +4 68
7 Wrexham 42 17 13 12 63 60 +3 64
8 Derby County 42 18 9 15 61 53 +8 63
9 Norwich 42 17 7 18 55 50 +5 58
10 Bristol City 42 16 10 16 52 51 +1 58
11 QPR 42 16 10 16 58 63 -5 58
12 Watford 42 14 15 13 52 51 +1 57
13 Preston NE 42 14 15 13 50 53 -3 57
14 Swansea 42 16 9 17 50 54 -4 57
15 Birmingham 42 15 11 16 51 52 -1 56
16 Stoke City 42 15 10 17 49 46 +3 55
17 Sheffield Utd 42 16 6 20 59 59 0 54
18 Charlton Athletic 42 12 13 17 39 51 -12 49
19 Portsmouth 42 12 12 18 43 57 -14 48
20 Blackburn 43 12 12 19 38 53 -15 48
21 West Brom 42 11 13 18 42 56 -14 46
22 Oxford United 42 10 14 18 41 54 -13 44
23 Leicester 42 11 14 17 54 64 -10 41
24 Sheff Wed 42 1 11 30 25 82 -57 -4
Slapp
banner
banner