Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 15:46
Elvar Geir Magnússon
Ekki ljóst hvenær Saka snýr aftur
Mynd: EPA
Óvíst er hvenær Bukayo Saka snýr aftur hjá Arsenal en hann hefur ekki spilað síðan liðið tapaði gegn Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins.

Arsenal hefur verið að gefa eftir og tapað þremur af síðustu fjórum leikjum í öllum keppnum. Liðið leikur seinni leik sinn gegn Sporting Lissabon í Meisaradeildinni á morgun og er með 1-0 forystu úr fyrri leiknum.

Á sunnudag er svo komið að toppslag gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

„Vonandi er þetta dagaspursmál en ekki vikur. Sjáum hvernig aukið æfingaálag mun leggjast í hann," sagði Arteta um Saka.


Slapp
banner
banner