Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 14:02
Elvar Geir Magnússon
Gylfi Orra eftirlitsmaður á Arsenal - Sporting
Gylfi Þór Orrason.
Gylfi Þór Orrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Orrason verður dómaraeftirlitsmaður á viðureign Arsenal og Sporting frá Lissabon í Meistaradeildinni á morgun.

„Þetta er stórt verkefni fyrir Gylfa, sem er afar reynslumikill á þessu sviði, og ánægjulegt að sjá fulltrúa íslenskrar knattspyrnu með mikilvægt hlutverk þegar svona langt er komið í UEFA-móti félagsliða," segir á heimasíðu KSÍ.

Um er að ræða seinni leik liðanna, en Arsenal leiðir viðureignina eftir 1-0 útisigur í fyrri leiknum.

Dómarakvartett leiksins kemur frá Frakklandi en Francois Letexier er aðaldómari. VAR-dómararnir frá Þýskalandi og Belgíu.
Mynd: EPA

Slapp
banner
banner