Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   þri 14. apríl 2026 21:56
Snæbjört Pálsdóttir
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Eimskip
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ísland lagði Úkraínu 1-0,  á Laugardalsvelli í kvöld, í mikilvægum sigri þar sem liðið tryggði sér sín fyrstu þrjú stig. Sandra María Jessen var ánægð með niðurstöðuna og innkomu Thelmu Karenar Pálmadóttur í byrjunarliðið.

„Við erum ótrúlega glaðar að hafa náð í okkar fyrstu stig og þau þrjú. Fyrst og fremst sáttar með það,“ sagði Sandra María eftir leik.


Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

„Heilt yfir vorum við að gera góða hluti og þetta er eitthvað sem við getum byggt ofan á.“

Aðstæður höfðu talsverð áhrif á leikinn að hennar mati, en völlurinn var mjög blautur sem gerði spilamennsku erfiðari.

„Boltinn skaust rosalega mikið á grasinu. Við vorum að ná helling af fyrirgjöfum og koma okkur í góðar stöður, en þegar sendingin inn í teig var ekki fullkomin var rosalega erfitt að ná góðum tökum á boltanum. Auðvitað eigum við að gera betur.“

Þrátt fyrir að aðeins eitt mark hafi litið dagsins ljós var það nóg til sigurs.

„Við náðum að skora eitt mark og það er auðvitað það sem skiptir máli. Það hefði verið fallegt að ná inn fleiri, en sigur er sigur og við erum sáttar með það.“

Hún telur að lykillinn fram undan sé þolinmæði í sóknarleiknum.

„Við þurfum að vera þolinmóðar með boltann. Halda í hann, færa hann frá hægri til vinstri og velja réttu augnablikin til að sækja. Þá getum við skapað okkur góð færi.“

Næsti leikur er gegn Englandi, en Sandra María er bjartsýn.

„Það er allt hægt, líka á móti Englandi.“

Thelma Karen Pálmadóttir var í fyrsta skiptið í byrjunarliðinu í kvöld og hrósaði Sandra María henni í hástert. 

„Hún er bara frábær leikmaður. Rosalega, rosalega efnilegur leikmaður. Með mikinn sprengikraft, getur skotist upp völlinn og kemur leikmönnum sífellt á óvart. Rosalega góð einn og einn og er að skapa sér góðar stöður. Rosalega spennandi leikmaður sem er með mörg góð spil á hendinni. Nú er bara að halda áfram að rækta hana og hafa trú á henni, því hún getur allt sem hún vill. 

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner