Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 10:01
Elvar Geir Magnússon
Fossblæddi eftir að hann fékk takkana beint í andlitið
Mynd: EPA
Betur fór en á horfðist þegar Fermín López, leikmaður Barcelona, fékk takkana beint í andlitið frá Juan Musso, markverði Atletico Madrid.

López fékk hörkufæri en eftir að Musso varði frá honum gerðist óhappið.

Það fossblæddi úr þessum 22 ára leikmanni Börsunga en eftir aðhlynningu gat hann þó haldið leik áfram.

Barcelona vann seinni leikinn gegn Atletico í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar með eins marks mun í gær en það dugði ekki til, Atletico vann fyrri leikinn með tveggja marka mun og kemst í undanúrslit.



Slapp