Manchester City er að ganga frá kaupum á brasilíska undrabarninu Eduardo Conceicao frá Palmeiras en þetta segir ESPN í Brasilíu.
Conceicao er 16 ára gamall vængmaður sem er talinn einn sá efnilegasti í Brasilíu.
Hann hefur ekki enn spilað leik með aðalliði Palmeiras en er að nálgast aðalliðið.
ESPN segir að hann muni ekki staldra lengi við í Brasilíu, en samkvæmt heimildum miðilsins er Manchester City í viðræðum við Palmeiras um leikmanninn. Hann mun kosta allt að 40 milljónum evra.
Man City er ekki eina félagið sem er áhugasamt, en svo virðist sem að það sé það eina sem er tilbúið að greiða uppsett verð.
Samband Man City og Palmeiras er mjög gott en Gabriel Jesus fór frá brasilíska félaginu til City árið 2016 og þá var Vitor Reis keyptur á síðasta ári.
Conceicao á 3 landsleiki að baki með U17 ára landsliði Brasilíu og skorað tvö mörk.



