Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 15. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Dettur Real Madrid úr leik?
Real Madrid er 2-1 undir í einvíginu gegn Bayern
Real Madrid er 2-1 undir í einvíginu gegn Bayern
Mynd: EPA
Átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld.

Arsenal tekur á móti Sporting á Emirates-leikvanginum en enska liðið er með eins marks forystu eftir seint sigurmark Kai Havertz í Portúgal.

Ef Arsenal tekst ætlunarverk sitt mun liðið spila í undanúrslitum í fyrsta sinn síðan 2009. Sigurvegarinn mætir Atlético Madríd sem henti Barcelona úr leik í gær.

Á sama tíma mun Bayern München mæta Real Madrid á Allianz-leikvanginum í München. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Bayern þar sem Manuel Neuer átti stórleik í marki Bæjara.

Real Madrid er lang sigursælasta lið í sögu keppninnar með fimmtán titla en Bayern er þriðja sigursælasta liðið með sex titla. Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.

Leikir dagsins:
19:00 Arsenal - Sporting (1-0)
19:00 Bayern - Real Madrid (2-1)
Slapp
banner
banner