Í kvöld kemur í ljós hvernig undanúrslitin í Meistaradeildinni verða. Atletico Madrid og Paris Saint-Germain flugu þangað inn í gærkvöldi.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Það er heldur betur farin að færast spenna í leikinn eftir að Gylfi tók fullt hús stiga í gær.

Gylfi Tryggvason
Arsenal 1 - 0 Sporting (2-0)
Kúkurinn virðist á leiðinni í viftuna hjá Arsenal en hér tekur hann snyrtilega u-beygju og lendir mjúklega í miðju klósettvatninu. Þægilegur 0-0 leikur og skyndisókn í lokin þegar Sporting hefur hent öllum fram. Dowman skorar. Draumurinn lifir. Annars er alltaf næsta ár.
Bayern München 2 - 1 Real Madrid (4-2)
Þvílíkir yfirburðir sem Bayern höfðu. Held þetta verði bara sama uppskrift. 2-1 og Luis Diaz svoleiðis langbesti maður vallarins.
Óskar Smári Haraldsson
Arsenal 3 - 0 Sporting (4-0)
Allt að fara í skrúfuna hjá mér. Á einhvern ömurlegan hátt var Gylfi með fullt hús í gær og er að sækja á mig. Tökum núna öruggu leiðina og spáum Arsenal öruggum 3-0 sigri. Treysti á Rice, Gabriel og Saliba muni sjá um mörkin. Jafnvel Gyökeres úr víti.
Bayern München 3 - 2 Real Madrid (5-3)
Hefði ekkert slegið hendinni á móti þessum leik í finals í staðinn fyrir 8-liða. Bayern eru á siglingu og klára þetta örugglega. Ekkert öruggara í þessum heimi en að Diaz skori. Ekkert.
Fótbolti.net - Kári Snorrason
Arsenal 1 - 0 Sporting (2-0)
Þetta verður copy/paste frá því í síðustu viku og mæli ég því með því að sem flestir sleppi því að stilla inn á þennan leik. Hinn lini Kai Havertz mun reyndar ekki skora heldur mun gleðigjafinn Noni Madueke sjá um að pota boltanum inn. Simeone á móti Arteta í undanúrslitum, vektu mig.
Bayern Munchen 2 - 3 Real Madrid (4-4)
Hvað hefur Meistaradeildin kennt manni? Jú, það að Real Madrid eru, voru og verða alltaf kóngarnir. Tottenham-áhrifin fara ekki svo auðveldlega af Kane og munu þau, því miður fyrir Bæjara, smita út frá sér - þeir vinna þetta aldrei. Gott ef að þetta fari ekki í framlengingu og Rudiger skorar óvænt sigurmark.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 26
Gylfi Tryggva - 26
Fótbolti.net - 20