Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 20:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mögnuð tölfræði hjá Mbappe
Mynd: EPA
Það er magnaður leikur í Munchen þar sem Real Madrid er í heimsókn hjá Bayern í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Bayern vann fyrri leikinn 2-1 þar sem Harry Kane og Luis Diaz skoruðu mörk Bayern og Kylian Mbappe skoraði mark Real.

Leikurinn í kvöld hófst með þvílíkum látum þar sem Arda Guler skoraði eftir aðeins 35 sekúndur eftir skelfileg mistök Manuel Neuer. Aleksandar Pavlovic jafnaði metin aðeins fiimm mínútum síðar.

Staðan er 3-2 í hálfleik, Real Madrid í vil en Mbappe skoraði þriðja mark liðsins. Það var tíunda mark hans á útivelli í keppninni á þessu tímabili en engum hefur tekist að skora svo mörg mörk á útivelli áður.

Hann hefur alls skorað 15 mörk en Cristiano Ronaldo á metið en hann skoraði 17 mörk í keppninni tímabilið 2013/14.


Slapp
banner
banner
banner