„Það er rosa mikil spenna og við erum tilbúnar að byrja þennan riðil," sagði Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í samtali við Fótbolta.net.
Ísland hefur leik í undankeppni EM í næstu viku þegar liðið mætir Hvíta-Rússlandi á heimavelli. Markmiðið hefur verið sett á að vinna riðilinn í undankeppninni.
„Það er auðvitað markmiðið og ekkert minna. Mér finnst allt í lagi að setja smá pressu á okkur. Mér finnst við vera það góðar að við eigum að enda á toppi riðilsins."
Áður en að leiknum gegn Hvít-Rússum kemur mun Ísland mæta Slóvakíu í vináttuleik klukkan 18:00 annað kvöld.
„Þessi hópur er búinn að ná vel saman og ég hlakka mikið til að sjá hvernig við spilum í undankeppninni."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























