Ágúst Hlynsson, leikmaður Horsens í Danmörku, var undir smásjánni hjá Jacek Kulig sem heldur úti Football Talent Scout á Twitter þennan þriðjudaginn.
Kulig heldur úti Twitter-síðunni þar sem hann fylgist vel með ungum og upprennandi leikmönnum. Hann er með rúmlega 175 þúsund fylgjendur.
Á hverjum degi tekur hann fyrir hann efnilegan leikmann sem honum þykir spennandi. Í dag var það hinn 21 árs gamli Ágúst sem var fyrir valinu.
Hann tekur fyrir styrkleika Ágústs og segir leikstíl hans svipaðan og hjá Papu Gomez, leikmanni Sevilla á Spáni. Ágúst spilar í dönsku 1. deildinni og er í U21 landsliðinu.
„Yngri bróður hans, Kristian, er líklega með einn meiri hæfileika að mínu mati. Þeir skoruðu báðir gegn Liechtenstein með U21 landsliðinu," skrifar Kulig.
„Guðjohnsen og Hlynsson - framtíð íslenska fótboltans."
Ágúst's younger brother Kristian (17, Ajax) is an even bigger talent in my humble opinion.
— Football Talent Scout - Jacek Kulig (@FTalentScout) November 16, 2021
In Iceland U-21's last game against Liechtenstein, both Ágúst and Kristian scored!
Gudjohnsen's and Hlynsson's - the future of Icelandic football. 🇮🇸
Athugasemdir