Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Verður erfitt fyrir Slot að vinna stuðningsmennina aftur á sitt band
Arne Slot er í klípu
Arne Slot er í klípu
Mynd: EPA
Jamie Carragher, einn leikjahæsti leikmaður í sögu Liverpool, segir að það verði erfitt fyrir Arne Slot að ná stuðningsmönnum félagsins aftur á sitt band.

Stuðningsmenn Liverpool bauluðu á Slot og liðið eftir 1-1 jafnteflið gegn Tottenham á sunnudag.

Þeir hafa fengið nóg af frammistöðu liðsins og sýndu óánægju sína greinilega í ljós.

Carragher segir baul stuðningsmanna vera aðvörun fyrir Slot enda þurfi mikið til að baulað sé á stjórann aðeins tæpu ári eftir að hafa unnið Englandsmeistaratitilinn.

„Það sem Liverpool er að gera á þessu tímabili er mikið áhyggjuefni. Stærsta í þessu er samt áhyggjuefni stjórans. Það er munur á stuðningnum á netinu og þeim stuðningsmönnum sem mæta á leiki. Þegar stuðningsmenn sem tjá sig á netinu hafa snúið baki við Slot á þessu tímabili þá hafa þeir sem eru á leikjunum staðið með honum. Jafnvel eftir það sem gerðist með Mo Salah og síðan kom næsti útileikur gegn AC Milan og þá sungu þeir lof til Slot.“

„Það er ekki auðvelt fyrir stuðningsmenn Liverpool að snúa baki við stjóra sem varð Englandsmeistari tæpu ári áður, en mér fannst vera stór vendipunktur á sunnudag þegar það kemur að hvað áhorfendum fannst um liðið og stjórann. Þetta baul í lok leiks kom frá pirruðum og óánægðum stuðningsmönnum. Það verður erfitt fyrir Slot að ná þeim aftur yfir á sitt band því um leið og þú tapar þeim þá er erfitt að ná þeim aftur,“
sagði Carragher.
Athugasemdir
banner
banner