Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 13:37
Elvar Geir Magnússon
Saka ekki með í stærsta leik tímabilsins
Bukayo Saka.
Bukayo Saka.
Mynd: EPA
Pep Guardiola og Mikel Arteta.
Pep Guardiola og Mikel Arteta.
Mynd: EPA
Manchester City og Arsenal mætast í stærsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Arsenal er á toppnum með 70 stig, sex stigum meira en Man City sem er í öðru sæti og á að auki leik til góða.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur staðfest að Bukayo Saka verði ekki með í leiknum. Enski landsliðsmaðurinn hefur ekki spilað síðan í 2-0 tapinu gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins þann 22. mars.

Hann hefur misst af tapleikjum gegn Southampton og Bournemouth og einvíginu gegn Sporting Lissabon í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Bukayo verður ekki með, það er klárt," segir Arteta en hann vonast til þess að Noni Madueke verði leikfær en hann fór meiddur af velli gegn Sporting á miðvikudag.

„Það er önnur æfing eftir. Þetta leit ekki svo illa út eftir leikinn. Ég er vongóður um að hann geti verið með."

Þar sem Saka er fjarverandi og Madueke tæpur er talað um möguleika á því að hinn 16 ára gamli Max Dowman gæti verið látinn byrja á hægri vængnum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner