Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“
Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
Matti Guðmunds svekktur: Lögðum líf og sál í þetta en fótboltinn er brútal
Margrét Brynja orðlaus: Gáfum allt í þetta og getum gengið stoltar af velli
Hrafnhildur Ása: Búin að bíða eftir stærra hlutverki og mitt að grípa það
Jón Óli: Þurfum að finna einhvern til að nudda á henni rassgatið
Alli Jói: Markmiðið er að berjast um hærra á töflunni
Linta hefur ekki áhyggjur - „Ekki í mínum höndum"
Valdimar færði KA ró - „Hefði viljað sjá okkur vera aðeins stærri"
Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"
Óskar Smári: Súrt tap og eigum hálfklárað verkefni fyrir norðan
Guðni eftir útisigur: „Algjört skólabókadæmi um að nýta breidd“
Guðný: Held það hafi enginn gert ráð fyrir þessu
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
   fös 17. apríl 2026 20:35
Daníel Smári Magnússon
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Sölvi Geir var ánægður með gott þolinmæðisverk sinna manna.
Sölvi Geir var ánægður með gott þolinmæðisverk sinna manna.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

„Bara sáttur, virkilega sáttur. Erfiðir KA menn í dag og þetta var mikið þolinmæðisverk sem að við þurftum að sýna,'' sagði Sölvi Geir Ottesen eftir 0-2 útisigur Víkings R. á KA í Bestu-deild karla í kvöld.


Lestu um leikinn: KA 0 -  2 Víkingur R.

„Völlurinn var frekar þurr, þannig að það var svona frekar erfitt að koma hraða á boltann og það tók bara sinn tíma að slíta KA í sundur. Við breyttum aðeins í seinni hálfleik, bara frá því hvernig völlurinn var, þá fórum við að sækja aðeins meira á bakvið þá. Það virkaði, fannst mér í seinni hálfleik,'' sagði Sölvi.

Það er viðbúið að Íslandsmeistarnir mæti talsverðri mótspyrnu hvar sem þeir koma, enda valinn maður í hverju rúmi og hver andstæðingur vill slá kórónuna af kollinum á þér. Sölvi segir sína menn klára í það verkefni.

„Þetta verður þolinmæðisverk að reyna að brjóta fimm manna blokkir niður, þannig að við gerðum það vel í dag og við erum sáttir.''

Hvernig horfði vítaspyrnudómurinn við Sölva?

„Frá mér þá fannst mér þetta vera víti sko. Mér fannst eins og Valdi hafi komist fyrr í boltann og bara samstuð. Þetta gerist hratt, ég svosem sé það ekki fullkomlega en boltinn allavega fór í áttina að markinu, sem segir að Valdi hafi verið á undan. En það er bara það, dómarinn þarf að meta það og hann gerir sitt besta. Í síðasta leik leik á móti Breiðabliki, hann gerði sitt besta en náði því ekki en ég get allavega sagt að við áttum inni víti,'' sagði Sölvi. Hann tók svo undir með fréttamanni Fótbolti.net að þetta jafnaðist allt saman út.

Sölvi kveðst ánægður með upphaf mótsins hjá sínum mönnum.

„Vissulega værum við til í að vinna báða leikina, en ég var samt sem áður sáttur með leikinn á móti Breiðablik, þar sem mér fannst við hafa mikla yfirburði og við fáum eitt skot á markið. Við höldum þeim frá allri ógn og sama í dag. Ég veit ekki hvort að Ingvar hafi þurft að verja bolta í dag, þannig að varnarleikurinn okkar er búinn að vera mjög sterkur. Við fáum vissulega svona skyndihlaup á okkur, sem að ég var ekki nógu sáttur með stöðuna á okkar mönnum. En það leysti sig, vorum fljótur að hlaupa til baka og redda málunum. En það er bara þannig að þegar þú ert mikið með boltann hátt uppi á vellinum, þar er dálítið tækifæri andstæðings til þess að sækja á okkur og við þurfum bara að vera klárir fyrir það. Við megum ekki sofna í eina mínútu, þá getur okkur verið refsað og bara yfir höfuð sáttur með þetta. Þetta er erfiður útivöllur á móti KA, þeir börðust vel fyrir hvorn annan og gerðu það vel þannig að ég er sáttur með að fara með þrjú stig heim til Reykjavíkur,'' sagði Sölvi Geir Ottesen.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner