„Það er langt síðan við unnum leik og það er mikilvægt að ná sjálfstraustinu í lag og byrja undankeppnina vel," segir Birkir Már Sævarsson, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins.
Fótbolti.net ræddi við hann eftir landsliðsæfingu í Peralada í dag.
Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.

„Þessi leikur gegn Andorra verður erfiður. Ég spilaði nú gegn besta félagsliðinu þeirra, Santa Coloma, í Evrópukeppninni í fyrra. Það var vægast sagt skrautlegt. Við þurfum að mæta með hausinn í lagi,
Birkir býst við svipuðu uppleggi hjá Andorra á föstudaginn og Santa Coloma bauð upp á gegn Val.
„Þeir spila öflugan varnarleik og eru taktískir. Þeir reyna að pirra andstæðinginn og reyna að taka sér mikinn tíma í hlutina. Það er mikilvægt að við séum einbeittir á verkefnið."
Birkir segir að það sé mikill þorsti og vilji í hópnum til að komast á EM 2020 en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir