Guehi til sölu - Everton hafnaði fyrirspurnum í Branthwaite - Wharton falur fyrir 70 milljónir
banner
   lau 18. október 2025 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Lánsmaður frá Napoli lék liðið grátt - Inter á toppnum
Giovanni Simeone
Giovanni Simeone
Mynd: EPA
Þrjú efstu lið ítölsku deildarinnar, Roma, Napoli og Inter, voru í eldlínunni í dag.

Napoli heimsótti Torino en það voru skörð hoggin í lið Napoli. Rasmus Höjlund og Scott McTominay voru ekki í leikmannahópnum en þeir eru að kljást við smávægileg meiðsli.

Giovanni Simeone, lánsmaður frá Napoli, skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega hálftíma leik en hann fór illa með vörn Napoli og fór framhjá Vanja Milinkovic-Savic áður en hann setti boltann í opið markið.

Roma fékk Inter í heimsókn en Roma var með jafn mörg stig og Napoli og Inter var þremur stigum á eftir. Ange-Yoan Bonny tryggði Inter sigurinn með marki snemma leiks þegar hann slapp einn í gegn.

Inter er komið á toppinn, Napoli er í 2. sæti og Roma í 3. sæti en liðin eru öll með 15 stig. Torino er í 13. sæti með 8 stig.

Torino 1 - 0 Napoli
1-0 Giovanni Simeone ('32 )

Roma 0 - 1 Inter
0-1 Ange-Yoan Bonny ('6 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 7 5 0 2 18 8 +10 15
2 Napoli 7 5 0 2 12 7 +5 15
3 Roma 7 5 0 2 7 3 +4 15
4 Milan 6 4 1 1 9 3 +6 13
5 Juventus 6 3 3 0 9 5 +4 12
6 Atalanta 6 2 4 0 11 5 +6 10
7 Bologna 6 3 1 2 9 5 +4 10
8 Sassuolo 7 3 1 3 8 8 0 10
9 Como 6 2 3 1 7 5 +2 9
10 Cremonese 6 2 3 1 7 8 -1 9
11 Cagliari 6 2 2 2 6 6 0 8
12 Udinese 6 2 2 2 6 9 -3 8
13 Torino 7 2 2 3 6 13 -7 8
14 Lazio 6 2 1 3 10 7 +3 7
15 Lecce 7 1 3 3 5 10 -5 6
16 Parma 6 1 2 3 3 7 -4 5
17 Verona 7 0 4 3 2 9 -7 4
18 Fiorentina 6 0 3 3 4 8 -4 3
19 Pisa 7 0 3 4 3 10 -7 3
20 Genoa 6 0 2 4 3 9 -6 2
Athugasemdir
banner
banner