Mainoo, Konate og Mac Allister eftirsóttir - Tonali með heimþrá - Semenyo til Liverpool?
   lau 08. nóvember 2025 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Tottenham og Man Utd: Þrjár breytingar hjá báðum liðum
Mynd: EPA
Tottenham fær Man Utd í heimsókn í fyrsta leik elleftu umferðar í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Thomas Frank gerir þrjár breytingar á liði Tottenham frá sigri gegn FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í vikunni. Djed Spence, Richarlison og Palhinha koma inn fyrir Destiny Udogie, Wilson Odobert og Rodrigo Bentancur. Mohamed Kudus er ekki með vegna meiðsla.

Ruben Amorim gerir þrjár breytingar á liðinu sem gerði jafntefli gegn Nottingham Forest í síðustu umferð. Noussair Mazraoui, Harry Maguire og Patrick Dorgu koma inn fyrir Leny Yoro, Diogo Dalot og Benjamin Sesko.

Kobbie Mainoo er ekki í hópnum en hinn 18 ára gamli Jack Fletcher er meðal varamanna.

Tottenham: Vicario, Porro, Romero, Van de Van, Spence, Palhinha, Sarr, Johnson, Simons, Kolo Muani, Richarlison.

Varamenn: Kinsky, Danso, Tel, Udogie, Odobert, Bentancur, Scarlett, Akhamrich, Rowswell.

Man Utd: Lammens, Mazraoui, De Ligt, Maguire, Shaw, Amad, Dorgu, Casemiro, Bruno Fernandes, Cunha, Mbeumo.

Varamenn: Bayindir, Dalot, Heaven, Yoro, Mount, Fletcher, Ugarte, Sesko, Zirkzee.
Athugasemdir
banner
banner