PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 23:14
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Óðinn Már og Mikael Breki hetjurnar
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Boreal
Það fóru þrír leikir fram í Lengjubikar karla í kvöld þar sem Hvíti riddarinn hafði betur gegn Ými í B-deildinni.

Óðinn Már Guðmundsson var hetja heimamanna í Mosfellsbæ með tvennu sem hann skoraði í fyrri hálfleik áður en Emil Skorri Þ. Brynjólfsson minnkaði muninn fyrir gestina í síðari hálfleik.

Lokatölur urðu 2-1 og er Hvíti riddarinn með þrjú stig eftir tvær umferðir. Ýmir er með eitt stig.

Í C-deildinni hafði Smári betur gegn Úlfunum þökk sé tvennu frá Mikael Breka Salmon.

Smári vann 1-2 á útivelli og voru öll mörk leiksins skoruð á tíu mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks. Sigvaldi Haukur Kaldalóns skoraði eina mark Úlfanna.

Smári er með sex stig eftir tvær umferðir og eru Úlfarnir án stiga.

Að lokum náði Elliði jafntefli við Hamar eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik. Brynjólfur Þór Eyþórsson náði forystunni fyrir Hvergerðinga og héldu gestirnir henni allt þar til á lokakaflanum.

Pétur Óskarsson gerði jöfnunarmark Elliða á 85. mínútu til að bjarga stigi, lokatölur 1-1.

Hamar er með fjögur stig eftir tvær umferðir en þetta var fyrsti leikur Elliða.

Hvíti riddarinn 2 - 1 Ýmir
1-0 Óðinn Már Guðmundsson ('23)
2-0 Óðinn Már Guðmundsson ('40)
2-1 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('74)

Úlfarnir 1 - 2 Smári
0-1 Mikael Breki Salmon ('35)
1-1 Sigvaldi Haukur Kaldalóns ('36)
1-2 Mikael Breki Salmon ('45)

Elliði 1 - 1 Hamar
0-1 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('37)
1-1 Pétur Óskarsson ('85)
Athugasemdir
banner
banner