PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Umdeildur vítaspyrnudómur réði úrslitum í Bilbao
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Athletic Bilbao 2 - 1 Elche
1-0 Gorka Guruzeta ('64 )
1-1 Andre Silva ('68 , víti)
2-1 Gorka Guruzeta ('89 , víti)

Athletic Bilbao tók á móti Elche í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans og var staðan markalaus í leikhlé þrátt fyrir yfirburði heimamanna í Bilbao sem komust nokkrum sinnum nálægt því að skora.

Athletic var áfram sterkari aðilinn í síðari hálfleik og náði Gorka Guruzeta forystunni með marki af stuttu færi. Hann skoraði eftir frábæra fyrirgjöf meðfram jörðinni frá Yuri Berchiche á vinstri vængnum og átti sofandaháttur í varnarleik Elche sinn þátt í markinu.

Gestirnir í liði Elche fengu eitt marktækifæri í fyrri hálfleik og eitt í þeim seinni. André Silva, fyrrum leikmaður AC Milan og RB Leipzig, nýtti færið í seinni hálfleiknum þegar hann steig á vítapunktinn eftir að Inigo Llekue gerðist brotlegur innan teigs.

Silva skoraði úr fyrstu spyrnunni en þurfti að taka hana aftur því boltinn snerti báða fætur hans áður en hann fór í netið. Hann skoraði af öryggi í seinni tilraun.

Athletic sótti og sótti í leit að sigurmarki og fann það loks á lokakaflanum, þegar Alejandro Hernández dómari dæmdi vítaspyrnu eftir athugun í VAR-skjánum.

Dómurinn er afar umdeildur en Guruzeta steig á punktinn og gerði sigurmarkið, lokatölur 2-1.

Þetta var þriðji sigurinn í röð hjá Athletic sem átti lélegan fyrri hluta tímabils og er með 34 stig eftir 25 umferðir, þó aðeins einu stigi frá evrópusæti.

Elche er með 25 stig, einu stigi fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner