Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV, var nokkuð sáttur með stigið sem hans menn fengu eftir 3-3 jafntefli gegn Val í Pepsi-deildinni.
ÍBV var 3-1 undir þegar lítið var eftir en jafnaði metin og tryggði sér stig sem gæti reynst mjög mikilvægt í baráttunni um áframhaldandi þátttöku í Pepsi-deildinni.
ÍBV var 3-1 undir þegar lítið var eftir en jafnaði metin og tryggði sér stig sem gæti reynst mjög mikilvægt í baráttunni um áframhaldandi þátttöku í Pepsi-deildinni.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 3 Valur
„Eins og leikurinn þróaðist, eigum við ekki segja að þetta sé eitt stig unnið? Þetta er mikilvægt stig fyrir okkur í stöðunni," sagði Ásmundur eftir leikinn.
„Við byrjum leikinn ágætlega og komumst 1-0 yfir en svo föllum við allt of langt frá þeim og virkum á köflum hræddir við þá. Gáfum þeim allt of mikið pláss og tíma og vorum heppnir að þeir hefðu hreinlega ekki bætt við mörkum á tímabili. Svo gerum við ákveðnar breytingar á liðinu og það næst betra jafnvægi, síðasta korterið var frábært, við komum til baka, jöfnum leikinn og hefðum getað klárað þrjú stig."
„Við ætlum að bæta við stigum í sarpinn. Þetta er ekki komið, en engu að síður mikilvægt stig."
Aron Bjarnason hefur lítið sem ekkert fengið að spila undanfarið undir stjórn Ásmundar, en dyrnar standa honum þó opnar.
„Hann hefur ekkert gert mér neitt, og hann hefur alveg fengið mínútur hjá mér og byrjaði fyrstu leikina. Ef hann stendur sig vel fær hann mínútur og spiltíma, ekki spurning," sagði Ásmundur.























