PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   lau 21. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alvöru kanónur hlutu gullmerki ÍA
Mynd: ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Seinni hluti aðalfundar knattspyrnufélags ÍA fór fram á miðvikudagskvöldið og voru alvöru kanónur sem hlutu gullmerki ÍA á 80. afmælisári félagsins, sem var stofnað árið 1946.

Bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugsson voru heiðraðir með gullmerki félagsins ásamt Teiti Þórðarsyni og Pétri Péturssyni sem hafa borið hróður ÍA víða um land og erlendis um áratugaskeið.

„Árið 2025 einkenndist áfram af markvissri uppbyggingu á innra starfi félagsins. Rekstur Knattspyrnufélags ÍA er sterkur og fjárhagsstaðan heilbrigð. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð og nam 54 mkr. Í lok árs 2025 hefur félagið byggt upp sterka lausa- og eiginfjárstöðu sem gerir félaginu kleift að halda áfram að efla innviði og styrkja samkeppnishæfni sína," segir meðal annars í tilkynningu frá ÍA.

„Fjöldi iðkenda heldur áfram að aukast og jókst þátttaka í yngri flokka starfi félagsins um 15% milli ára, sem endurspeglar öflugt og vaxandi starf."

Goðsagnirnar fjórar léku allar erlendis í atvinnumennsku og fyrir íslenska landsliðið á glæsilegum ferlum.

Arnar er núverandi landsliðsþjálfari og var Pétur aðstoðarþjálfari landsliðsins frá 2007 til 2011.

Teitur stýrði meðal annars Lilleström og Vancouver Whitecaps á sínum þjálfaraferli á meðan Bjarki reyndi fyrir sér hjá ÍA í skamma stund.
Athugasemdir
banner
banner