Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 14:34
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Coventry að finna taktinn á ný - Leicester í fallsæti
Coventry er með fjögurra stiga forystu undir Lampard
Coventry er með fjögurra stiga forystu undir Lampard
Mynd: EPA
Frank Lampard og lærisveinar hans í Coventry City unnu annan leikinn í röð er liðið vann WBA 2-0 í ensku B-deildinni í dag. Hann ætlar að koma liðinu upp í úrvalsdeild.

Coventry er að eiga stórkostlegt tímabil en tekið kafla þar sem það hefur hikstað aðeins.

Það kom Middlesbrough inn í titilbaráttuna en Coventry stefnir nú að því að koma sér aftur í kjörstöðu og er að finna taktinn. Liðið vann toppslaginn gegn Boro í síðustu umferð og vann síðan þægilegan sigur á WBA í dag.

Ephron Mason-Clark og Jack Rudoni skoruðu mörk gestanna í fyrri hálfleiknum sem tryggði annan sigurinn í röð.

Coventry er á toppnum með 65 stig, fjórum stigum meira en Boro sem að vísu mætir Oxford á eftir og getur þar minnkað muninn aftur niður í eitt stig.

Leicester City er áfram í fallsæti eftir að hafa gert 2-2 jafntefli við Stoke á útivelli.

Sex stig voru dregin af Leicester fyrir brot á fjárhagsreglum og er liðið nú einu stigi frá öruggu sæti í deildinni.

Stoke City 2 - 2 Leicester City
1-0 Ben Wilmot ('3 )
1-1 Divine Mukasa ('52 )
1-2 Harry Winks ('76 )
2-2 Ben Wilmot ('89 )

Hull City 1 - 3 QPR
0-1 Paddy McNair ('21 , sjálfsmark)
1-1 Joe Gelhardt ('39 )
1-2 Daniel Bennie ('84 )
1-3 Richard Kone ('90 )

West Brom 0 - 2 Coventry
0-1 Ephron Mason-Clark ('5 )
0-2 Jack Rudoni ('32 )

Swansea 1 - 0 Bristol City
1-0 Zan Vipotnik ('26 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 37 23 8 6 77 38 +39 77
2 Middlesbrough 37 20 9 8 58 36 +22 69
3 Millwall 37 20 8 9 51 41 +10 68
4 Ipswich Town 36 18 11 7 64 38 +26 65
5 Hull City 37 19 6 12 59 53 +6 63
6 Wrexham 36 15 12 9 55 47 +8 57
7 Southampton 36 14 12 10 58 47 +11 54
8 Derby County 37 15 9 13 54 48 +6 54
9 Watford 36 13 13 10 46 42 +4 52
10 Birmingham 37 14 10 13 47 47 0 52
11 Swansea 37 15 7 15 44 44 0 52
12 Bristol City 37 14 8 15 48 48 0 50
13 Sheffield Utd 37 15 4 18 52 51 +1 49
14 Preston NE 37 12 13 12 42 46 -4 49
15 Norwich 36 14 6 16 49 45 +4 48
16 Stoke City 37 13 9 15 42 39 +3 48
17 Charlton Athletic 37 12 11 14 35 44 -9 47
18 QPR 37 13 8 16 46 59 -13 47
19 Portsmouth 36 10 10 16 36 47 -11 40
20 Blackburn 37 10 9 18 34 48 -14 39
21 Leicester 37 11 11 15 50 57 -7 38
22 Oxford United 37 9 11 17 35 48 -13 38
23 West Brom 37 9 10 18 36 54 -18 37
24 Sheff Wed 37 1 9 27 23 74 -51 -6
Athugasemdir
banner