Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Man City og Newcastle mætast í þriðja sinn á árinu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin er í fullu fjöri þessa helgina og hefst veislan í dag þegar Aston Villa, Chelsea og Brentford eiga heimaleiki.

Aston Villa getur minnkað bilið á milli sín og toppliðs Arsenal niður í fimm stig með sigri gegn nýliðum Leeds United, en lærlingar Unai Emery eru aðeins búnir að vinna tvo leiki af síðustu fimm í öllum keppnum.

Chelsea spilar við nýliða Burnley og getur vippað sér uppfyrir Manchester United í baráttunni um meistaradeildarsæti, á meðan Brentford mætir Brighton. Brentford hefur verið að spila frábærlega að undanförnu og er níu stigum fyrir ofan Brighton, aðeins fimm stigum frá meistaradeildarsæti.

Fallbaráttulið West Ham tekur svo á móti Bournemouth sem hefur verið að spila vel eftir söluna á Antoine Semenyo, áður en Manchester City og Newcastle United eigast við á Etihad leikvanginum.

Man City og Newcastle eru að mætast í þriðja sinn á þessu ári en hingað til hafa lærlingar Pep Guardiola haft betur, 5-1 samanlagt. Newcastle vann þó fyrri innbyrðisslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni í lok nóvember.

Leikir dagsins
15:00 Brentford - Brighton
15:00 Aston Villa - Leeds
15:00 Chelsea - Burnley
17:30 West Ham - Bournemouth
20:00 Man City - Newcastle
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner