Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Fábregas heimsækir Juventus
Mynd: EPA
Mynd: EPA
26. umferð ítalska deildartímabilsins hófst í gærkvöldi og heldur hún áfram í dag. Fyrsti leikur dagsins er jafnframt sá stærsti, þegar Juventus tekur á móti Como í afar spennandi leik.

Lærlingar Luciano Spalletti munu mæta brjálaðir til leiks eftir óvænt 5-2 tap gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í vikunni og afar umdeilt tap gegn Inter um síðustu helgi.

Gestirnir frá Como munu þó ekki gera þeim auðvelt fyrir enda er spútnik liðið aðeins fimm stigum frá meistaradeildarsæti, með 42 stig eftir 25 umferðir - fjórum stigum á eftir Juventus.

Nico Paz, besti leikmaður Como og mögulega deildarinnar það sem af er tímabils, er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Fallbaráttulið Lecce tekur svo á móti toppliði Inter en Þórir Jóhann Helgason hefur ekki komið við sögu í síðustu sjö leikjum Lecce í röð. Inter getur komist í tíu stiga forystu með sigri.

Að lokum eigast Cagliari og Lazio við í kvöld, en fimm stig skilja liðin að um miðja deild. Lazio er níu stigum frá evrópubaráttunni og þarf á sigri að halda eftir slakt gengi síðustu vikur.

Leikir dagsins
14:00 Juventus - Como
17:00 Lecce - Inter
19:45 Cagliari - Lazio
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner